Búbblur Bjór public
[search 0]
More
Download the App!
show episodes
 
Artwork
 
Birkir og Daði hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
  continue reading
 
Loading …
show series
 
Í þessum þætti ætlum við að fara rétt ofan í sögu Ólympíuleikanna á okkar sérstaka hráa hátt. Við byrjum á að stikla á því skemmtilega úr þeim síðustu og förum svo yfir hinar furðulegustu „íþróttir“ sem voru eitt sinn inni í þessum leikum. Eins og dúfu skotkeppni, nei, ekki leirdúfu skotkeppni, heldur dúfu skotkeppni! Púðluhundasnyrting sem 128 kep…
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir heppnasta fólk í heimi, sem flest hafa naumlega sluppið frá dauðanum á ótrúlegan hátt, og sumir oftar en einu sinni, jafnvel átta sinnum og ættu bara að vera heima hjá sér umvafin í bómul og búbbluplast. Hver var svo klár að þjappa dýnamít með járnkarli? Hver lifði af tvær kjarnorkusprengjur á fjórum dögum? Hvernig er …
  continue reading
 
Það er mikið um glens og grín í þessum þætti eins og alltaf þegar Herpes bræður mæta, Davíð og Þröstur. Við losnum ekki við þá, þeir bara mæta aftur og aftur! Birkir byrjar þáttinn á því að kasta fram sinni hugmynd að framhaldslífi hvolpasveitarinnar fyrir eldri kynslóðir, eiginlega bara mjög góð hugmynd að bíómynd. Svo klúðrar hann brandara sem ha…
  continue reading
 
Í þessum þætti gefst ykkur tækifæri á að kynnast aðeins skuggalegri fortíð þáttastjórnenda. Fyrst tökum við létt spjall um þessa blessuðu endalausu Ólympíuleika á léttum nótum og Birkir talar um að hann ætli að taka jákvætt ár þrátt fyrir íslenska sumarið sé að drepa hann tilfinningalega. Við ætlum að rifja upp gömul strákapör í hópnum Krass sem va…
  continue reading
 
Birkir byrjar á því að tala um sitt sjötta skilningarvit sem tengist klósettferðum Daða. Frekar einkennilegt... En í þessum þætti förum við yfir skrítna hluti sem hafa fundist á jörðinni. Hlutir eins og hinn dularfulli London hamar, Baghdad battery sem er 2.000 ára gömul rafhlaða, fjársjóður sem fannst undan ströndum Ísraels, nokkrir 2 metra háir L…
  continue reading
 
Við fengum hlaðvarpsmógúlinn Frosta Logason til okkar í skemmtilegt spjall þar sem við förum til dæmis yfir Mínus ferilinn og rokk ævintýrin, hvernig það var að túra með Papa Roach og hita upp fyrir bönd eins og Incubus, Muse, Velvet Revolver, Metallica og fleiri. Við ræðum einnig um woke kúltúrinn á Íslandi, Big Pharma, Trumpismann, sjóævintýri Fr…
  continue reading
 
Hellum okkur í tilgangslausa fróðleikinn! Hversu þung eru ský! Vatn er ekki blautt! HA! Heilinn á þér er stanslaust að borða sjálfan sig, hver var hauslausi Mike sem lifði vel og lengi...hauslaus. Hvað eru margir með þriðju geirvörtuna, af hverju frýs heitt vatn hraðar en kalt vatn og af hverju klæjar okkur í húðina!!! Þú færð svör við helstu myste…
  continue reading
 
Dáðasti sonur Íslands (að eigin sögn) snýr aftur heim eftir tveggja vikna skelfingarútlegð! Birkir ferðaprinsessa snýr tilbaka frá Tenerife og er ansi svipaður Ross úr Friends þegar hann fór í misheppnaða brúnkuspreyið. Birkir segir okkur aðeins frá klikkuðu villunni sem hann gisti í og færði sig svo á 5 stjörnu hótel með nektarnýlendu á þakinu sem…
  continue reading
 
Þáttur dagsins er eiginlega búbblur, bjór og Jager! Við byrjum á ranti um hunda út af einhverju, það bara byrjaði einhvernveginn, Daði talar um hundaárás sem hann lenti í og Birkir segir okkur frá því þegar hann rétt slapp frá mannætuvillihundum á Krít. En svo er það málefni þáttarins, the 80´s eða áttundi áratugurinn! Hvor er svalari, Gen X eða Mi…
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir skrítnar íþróttagreinar eins og Chess boxing, Camel jumping, Man Vs Horse maraþon, Cheeserolling, Wife carrying, Fireball football og Beer mile, en allt eru þetta viðurkenndar greinar í sínu landi, eða eins viðurkenndar og hægt er, þetta er brot af því sem við förum yfir, við ræðum einnig stórafreksíþróttaferlana okkar…
  continue reading
 
Við sitjum uppi með Davíð og Þröst, þeir hreinlega neita að yfirgefa stúdíóið, þeir taka þátt í umræðuefni þessa þáttar sem er blaður og þvaður um hinar og þessar kvikmyndir, og allt þetta í lýsingu manna sem eru allir komnir vel í glas. Hver er hin fullkomna mynd? Hvaða myndir þolum við ekki? Hvaða myndir eru okkar Guilty Pleasure, og af hverju ge…
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir The 2000´s eða The Noughties eins og það kallast víst. Ja hvað gerðist? Sem dæmi af því sem við förum yfir er það að iPodinn mætti, myspace, netflix, hrunið, rosalegir sjónvarpsþættir fóru af stað, svakalegar bíómyndir, Halli í Botnleðju hefði getað verið trommarinn í Coldplay og við sluppum með skrekkinn þar sem að Y2…
  continue reading
 
Davíð og Þröstur heimsækja okkur í þessum þætti til að tala um húmor! Þú vilt ekki missa af þessum þar sem við förum í geggjaða pabbabrandarakeppni! Vissir þú að það var hláturfaraldur árið 1962? Hann var töluvert skemmtilegri en Covid. Þarf maður virkilega að hafa svo miklar áhyggjur af Cancellation Nation? Við rifjum upp vandræðalegar sögur af ok…
  continue reading
 
Blæti! Hvað er blæti, hvernig blæti eru til? Dr. Birkir og Dr. Daði leggjast hér yfir hin ýmsu blæti mannkynsins. Sumt skrítið, annað eitthvað annað, hér er enginn að dæma, við erum bara að velta steinum og hafa gaman. Stórar spurningar sem við svörum er t.d. hvað er soft vore, hvað er hard vore, hvað er gasmasking blæti, við förum yfir þetta allt …
  continue reading
 
Hér ræðum við um hið yfirnáttúrulega, það hljómaði bara eitthvað svo miklu betur að skíra þáttinn „Supernatural“ frekar en „Yfirnáttúrulegt“. Þabbaraþannig! En í þessum þætti fáum við góða gesti, þá Davíð og Þröst sem voru með okkur í trúmálsþættinum sem fékk rosalegar góðar viðtökur og eiginlega bara sló í gegn! Núna tökum við fyrir t.d. drauga, v…
  continue reading
 
Sennilega einn misheppnaðasti örþáttur sem hefur verið tekinn upp. Það er séns að við höfum verið aðeins í glasi og galsa, við förum í nokkra leiki eins og hvort myndirðu frekar, viljiði ekki vita hvaða vin Birkir myndi vilja að Daði myndi drepa ef hann þyrfti þess (mjög steikt dæmi)...og getur Daði hætt að drekka? Birkir stingur upp á samheitaleik…
  continue reading
 
Við leysum stóru málin í þessum þætti! Birkir segir okkur frá vankunnáttu sinni á email, hversu erfitt það er að finna forritið í tölvunni, er stríð á milli IOS og Android, veistu hvenær fyrsti rafmagnsbíllinn kom, hver varð óheppin/n varðandi deepfake, og hvað er deepfake? Daði er handviss um það að A.I. verða endalok mannkynsins, við förum yfir s…
  continue reading
 
Friðrik Thorlacius eða Frigore eins og margir þekkja hann skaust á sjónarsviðið aðeins 18 ára gamall árið 2004 með hljómsveitinni sinni Igore, með stórsmellinn Kókómalt sem allir ættu að þekkja. Síðan þá hefur hann komið víða við á tónlistarferlinum með Plugg´d, KSF og Manic State sem dæmi, hann er einnig mjög virkur DJ í ýmsum verkefnum hér og þar…
  continue reading
 
Við þekkjum öll leikjaþætti eða „Game Shows“. En hvað með alla þessa rugluðu sem hafa verið teknir af dagskrá? Og af hverju voru þeir teknir af dagskrá? Við ætlum að fara yfir einhverja rugluðustu leikjaþætti sem hafa ratað á sjónvarpsskjáinn og komast til dæmis að því hvaða þáttur fékk bara 3 þætti sýnda í sjónvarpi áður en hann var tekinn af dags…
  continue reading
 
Í þessum þætti dettum við í smá fortíðarþrá og tölum um níunda áratuginn, eða The 90´s. Geggjaður tími sem færði okkur allsskonar, eins og gosleikina þar sem við söfnuðum töppum af gosflöskum og unnum Coke, Sprite eða Fanta jójó fyrir vikið, gamli góði Mjólkurbikarinn, Stüssy fötin, smellubuxurnar, Buffalo skór, fílófax, tíkallasímar, ferðageislasp…
  continue reading
 
Birkir talar um nýyfirstaðna ferð til New York og við ræðum hvar við vorum staddir þegar 9/11 gerðist. Hann segir okkur frá Ground Zero og minnisvörðunum. Við förum svo yfir furðulega hluti sem hafa selst á eBay og oftar en ekki á svakalegar upphæðir. Til dæmis gamlar tyggjóklessur frá frægum einstaklingum sem seldist á tugi milljóna króna, Paul se…
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir furðuleg og fáránleg heimsmet sem hafa ratað í heimsmetabók/skrá Guinness. Einnig fræðir Birkir okkur um af hverju þetta heitir Guinness og einhverra hluta vegna líka um meðalstærð typpa á Íslandi.... Við tölum t.d um heimsmetið í pöbbarölti, heimsmet í sniglum á andliti (maður gæti spurt af hverju en einhverjir eru at…
  continue reading
 
Við tökum aðeins öðruvísi þátt núna þar sem við spjöllum um nýyfirstaðna rosalega Amsterdam ferð, við smökkum nokkra páskabjóra og páskaegg, Birkir les upp úr „Dagbók Daða“, við tölum um málefni líðandi stundar, Eurovision, Óskarsverðlaunin, peningarán, 10 ára gutta sem stal leigubíl og Birkir fær eina bestu hugmynd tengda íslensku páskaeggjunum, G…
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir allsskonar dýr mistök í heiminum, allt frá heimskulegum ákvörðunum til hreinnar óheppni! Dýr mistök í kvikmyndum? Hvað gerðist þegar kók ákvað að hressa upp á kókuppskriftina 1985? Hvað kostaði það umboðsmann að taka ekki að sér Bítlana? Hversu mikið töpuðu bókaútgefendur á því að trúa ekki á J.K Rowling? Þetta og mörg…
  continue reading
 
Við fengum gamlan og góðan vin í spjall og förum við yfir ansi margt áhugavert! Við byrjum á því að hneysklast á og greina búbblufíkn Birkis. Við tölum um fyrstu þjóðhátíð Sverris og Birkis, þar sem Birkir var handjárnaður við stelpu í 24 klukkutíma og sú stelpa var ekki í lögreglunni. Sverrir talar um það þegar hann lenti á sama pókerborði í Vegas…
  continue reading
 
Í þessum þætti er nettur galsi í gangi þar sem við byrjuðum á búbblum og bjór töluvert áður en við mættum í upptökur. Við förum við yfir verstu störf í heiminum í gegnum tíðina, eða þorrann af þeim. Allt frá því að smakka mögulega eitraðan mat fyrir konungsfólk í það að senda börn niður í strompa, og allt þar í kring. Ruglum og bullum og förum í sk…
  continue reading
 
Charles Darwin var einhver klárasti gaur allra tíma....er okkur sagt allavega... Það er því tilvalið að skíra verðlaun sem tengjast því að deyja í ótrúlegri heimsku eftir þessum gáfaða manni. Í þessum þætti förum við yfir nokkur dauðsföll sem hlutu Darwin verðlaunin, eða The Darwin Awards eins og þau heita á ensku. Allt frá því að fara fram af risa…
  continue reading
 
Í þessum þætti fáum við hinn stórskemmtilega Þórhall Þórhallsson til okkar í viðtal. Við ræðum við hann um það þegar hann vann keppnina Fyndnasti maður Íslands árið 2007, þegar hann hitaði upp fyrir montrassinn Pablo Fransisco og hinn viðkunnanlega Jon Lajoie, hvernig hann dílar við “hecklers”, gamall karakter úr morgunþættinum Magasín á FM 957 er …
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir frábærar uppfinningar mannsins, ömurlegar uppfinningar mannsins og fáránlega fyndnar og jafnvel tilgangslausar uppfinningar mannsins. Til dæmis: Hjólastóll með pedölum, skautabarnaróla, barnabúr í glugga, dildo ruggustóllinn og hver var það sem fann upp helvítis pop up auglýsingar í tölvunni þinni! Við nafngreinum þann…
  continue reading
 
Í þessum þætti fáum við 2 gesti, Davíð sem kemur sem trúarsérfræðingur og Þröstur sem er ekta Íslendingur og trúir á álfa. Það er kominn safi í hópinn þar sem við erum að halda upp á afmælið hans Birkis þennan dag og vafasamar skoðanir koma í ljós. Birkir segir okkur frá draug sem ofsækir vinnustaðinn hans, Daði kallar Jodie Foster bölvaðan lygara,…
  continue reading
 
Birkir sýnir okkur nýja hárgreiðslu (vídeó á instagram/facebook/youtube). Hann útskýrir einnig fyrir okkur hvað Panus er, við förum yfir um 3.000 persónuleg hate comments sem áttu eitt sameiginlegt, og í guðanna bænum, getur einhver útskýrt fyrir Birki muninn á BTS og BDSM! Já, fyrirbærið youtube fær líka einhverja umfjöllun í þættinum!…
  continue reading
 
Í þessum þætti förum við yfir tónlistarsmekk hvors annars, og dæmum, sumir meira en aðrir, það er óhætt að segja að Birkir er stórhneykslaður á því sem stendur upp úr hjá Daða í tónlistinni. Við hringjum í mesta Metallica aðdáanda Íslands og gerum hann þokkalega pirraðan. Birkir kastar svakalegum upplýsingum út í kosmósinn sem þarf að skoða og ræða…
  continue reading
 
Við fengum hinn ótrúlega skemmtilega Garðar eða Kilo til okkar í viðtal. Hann er ekki bara skemmtilegur, fyndinn og frábær rappari, heldur líka með skemmtilegri sögumönnum sem finnast. Hann fer yfir æskuna, neysluna, hjartaáfallið, vandræðalegasta atvikið og margt fleira í þessum stórskemmtilega þætti.…
  continue reading
 
Í þessum þætti fjalla Birkir og Daði um lýtaaðgerðir, einhverjir þurfa ekki endilega á þeim að halda, aðrir þurfa kannski smá á þeim að halda, og sumir fara hreinlega overboard í þeim. Hér er ekki verið að dæma neinn, einkunnarorð þessar þáttar eru "You do you if it makes you happy". Skál!By Búbblur & Bjór
  continue reading
 
Loading …

Quick Reference Guide