Content provided by RÚV. All podcast content including episodes, graphics, and podcast descriptions are uploaded and provided directly by RÚV or their podcast platform partner. If you believe someone is using your copyrighted work without your permission, you can follow the process outlined here https://player.fm/legal.
Player FM - Podcast App Go offline with the Player FM app!
On the Season 2 debut of Lost Cultures: Living Legacies , we travel to Bermuda, an Atlantic island whose history spans centuries and continents. Once uninhabited, Bermuda became a vital stop in transatlantic trade, a maritime stronghold, and a cultural crossroads shaped by African, European, Caribbean, and Native American influences. Guests Dr. Kristy Warren and Dr. Edward Harris trace its transformation from an uninhabited island to a strategic outpost shaped by shipwrecks, colonization, the transatlantic slave trade, and the rise and fall of empires. Plus, former Director of Tourism Gary Phillips shares the story of the Gombey tradition, a vibrant performance art rooted in resistance, migration, and cultural fusion. Together, they reveal how Bermuda’s layered past continues to shape its people, culture, and identity today. You can also find us online at travelandleisure.com/lostcultures Learn more about your ad choices. Visit podcastchoices.com/adchoices…
Content provided by RÚV. All podcast content including episodes, graphics, and podcast descriptions are uploaded and provided directly by RÚV or their podcast platform partner. If you believe someone is using your copyrighted work without your permission, you can follow the process outlined here https://player.fm/legal.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í næsta haust eru 30 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Content provided by RÚV. All podcast content including episodes, graphics, and podcast descriptions are uploaded and provided directly by RÚV or their podcast platform partner. If you believe someone is using your copyrighted work without your permission, you can follow the process outlined here https://player.fm/legal.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í næsta haust eru 30 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar förum við í ferðalag að rótum rythmans með tveimur gömlum vinum og tónlistaráhugamönnum sem hafa safnað músík – plötum og diskum síðan þeir voru börn – eiga óheyrilegt magn af plötum – hafa klikkaðan áhuga á músík – og annar þeirra á græjum lika – hljómflutningstækjum – og báðir safna þeir fyrst og fremst geisladiskum – segja að það sé besta formatið og sándið. Þetta eru þeir Finnbogi Marinósson og Gunnlaugur Sigfússon sem eiga það líka sameiginlegt að hafa gert þætti fyrir Rás 2. Gulli gerði 4 þætti um sögu Stax útgáfunnar í Memphis í fyrra og var þar áður í Plötuskápnum á föstudagskvöldum. Finnbogi leysti Gest Einar jónasson stundum af á sínum tíma með Hvíta máva. Þeir Finnbogi og Gulli fóru í ferð til USA – músíkferð – að Rótum rytmans. Þeir ferðuðust gegnum 12 af ríkjum bandaríkjunum - keyrðu c.a. 5800 km á 20 dögum og viðkomustaðir voru: Suður Karólína - Georgía - Norður Karólina - Alabama - Tennessee - Mississippi - Kentucky - Ohio - Michigan - Illinois - Wisconsin - Minnesota. Þeir Gulli og Finnbogi segja frá í Rokklandi -…
PS & CO er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag. Þar er aðal maðurinn Pjetur Stefánsson myndlistarmaður og rokkskáld. Hann kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og við spjöllum um nýju plötuna, Í Brennandi húsi, lífið og listina. Helgi Pjetur heitir maður sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag og hann kallar sig HELGAR. Hann hefur komið nálægt músík á ýmsa vegu í langan tíma, en ekki sem flytjandi og höfundur fyrr en núna. Helgi Pjetur tók þátt í stofnun tonlist.is uppúr aldamótum og síðar stofnaði hann plötuútgáfuna Cod Music sem gaf mörgum ungum íslenskum listamönnum byr undir báða vængi. Eftir það fór hann í tæknigeirann og stofnaði ýmsi sprotafyrirtæki, en nú er það músíkin – Helgar. Þorleifur Gaukur Davíðsson er fimmti maðurinn í Kaleo – hefur verið að túra með þeim og taka upp í nokkur ár. Hann er staddur í kaliforníu og við heyrum aðeins í honum og kynumst tónlistarvinum hans sem eru að koma með honum til landsins í byrjum júní og saman ætla þau að spila í Fríkirkjunni, Midgard Basecamp á Hvolsvelli og á Vagninum á Flateyri.…
Dúettinn GG Glús var að senda frá sér plötuna Make it right sem er önnur stóra platan þeirra og í raun einskonar systurplata plötunnar Punch sem kom út 2019. GG Blús er tveggja manna blúshljómsveit – skipuð þeim Gumma trommara og Gumma gítarleikara sem syngja báðir og svo eru þrjár konur gestir á plötunni, Brynhildur Oddsdóttir, Bryndís Ámundsdóttir og Unnur Birna Björnsdóttir. Þeir Gummi og Gummi koma í heimsókn í Rokkland. Pétur Ben var með tónleika í Iðnó á fimmtudaginn en undanfarin 11 ár hefur hann eingöngu sent frá sér 2 ný frumsamnin lög, og það nýjasta; Painted blue pt. 2 kom út í vikunni. Pétur kemur í heimsókn. Dóra og Döðlurnar kepptu í Músíktilraunum í ár í fjórða sinn. Þær ætluðu að vinna, en það gekk ekki eftir. Þær sendu nýverið frá sér lagið Leyndarmál og eru að spila hér og þar í sumar. Þungarokkshljómsveitin Sleep Token frá London er leyndardómsfull og áhugaverð hljómsveit. Sleep Token var að senda frá sér plötu númer fjögur og hún fór beina leið í toppsæti Breska vinsældalistans núna í vikunni. Við kynnumst Sleep Token aðeins í Rokklandi vikunnar og minnumst Chris Cornell úr Soundgarden og Audioslave, en hann lést þennan dag – 18. Maí fyrir 8 árum.…
Neil Young kemur við sögu í þættinum en það var að koma út plata sem gefin er út honum tiul heiðurs – en líka til að safna peningum fyrir Bridge skólann í Kaliforníu sem fyrrum eiginkona hans, Pegi, stofnaði fyrir næstum 40 árum. Bridge skólinn er fyrir fjölfötluð börn – eins og Ben son þeirra Neil og Pegi. En Neil er líka að fara að senda frá sér nýja plötu með nýrri hljómsveit, The Chrome Hearts, og er á leiðinni í tónleikaferð. Hann verður 80 ára í nóvember. Luiciano Pavarotti kemur líka við sögu, Hörður Torfason, Fiona Apple, Brandi Carlile, Elvis og fleiri.…
Bryan Adams er aðalgestur Rokklands að þessu sinni. Hann var með tvenna tónleika hérna um daginn í Eldborg í Hörpu sem seldist upp á - á svipstundu. Rokkland spjallaði við hann nokkrum dögum áður en hann kom og við heyrum það spjall í þættinum í bland við músíkina hans Bryans Adams.
Egill Ólafsson kemur aðeins við sögu í Rokklandi í dag, Steindór Andersen sem lést núna á dögunum – mikill heiðursmaður – vann mikið með Sigur Rós – einn helsti kvæðamaður Íslands undanfarna árutugi – Soffía Björg Óðinsdóttir – Teitur Magnússon – Mark Knopfler – allskonar – splunkuný músík og eldri. En við heyrum líka á eftir í Karli Hallgrímssyni sem er Meistaranemi í stjórnun menntastofnana, en hann er búinn að vera að vinna að rannsókn um hvaða svipmyndir af skólastarfi og hvaða viðhorf til náms og menntunar birtast í textum íslenskra dægurlagatextahöfunda? Hann er búinn að gera tvo þætti um málið fyrir Rás 2 – sá fyrri er á ruv.is og í spilaranum og seinni er á dagskrá 1. Maí.…
Steinar Berg Ísleifsson hlaut á dögunum heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir ævistarf sitt. Steinar var áratugum saman einn mikilvægasti maðurinn í tónlistarlífinu á Íslandi. Hann gaf út fyrstu plötu Stuðmanna- Sumar á Sýrlandi. Hann fór með Mezzoforte til Englands. Hann gaf út fyrstu 10 plötur Bubba Morthens og svo Nýdönsk, Todmobile, Sálina hans Jóns Míns, Jet Black Joe og fleira og fleira. Hann rak plötubúðir og flutti inn erlendar plötur, var í fararbroddi í íslensku tónlistraútrásinni og tónlistarhátíðahaldi á Íslandi. Hann er fylginn sér og hefur oft séð möguleika þegar aðrir sáu ekki. Síðustu 20 árin hefur Steinar einbeitt sér að ferðaþjónustu í Fossatúni í Borgarfirði – og hann hefur líka skrifað bækur og lög. Steinar Berg er er þúsundþjalasmiður. Hann var gestur Rokklands fyrir viku og í dag er framhald - seinni hlutinn.…
Steinar Berg Ísleifsson hlaut á dögunum heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir ævistarf sitt sem er langt og umfangsmikið. Steinar var áratugum saman einn mikilvægasti maðurinn í tónlistarlífinu á Íslandi. Hann var útgefandi sem gaf út plötur með flestum helstu stjörnum íslensks tónlistarlífs: Stuðmenn, Spilverk þjóðanna, Þú og ég, HLH flokkinn og Björgvin, Laddi, Start, Jóhann Helgason, Eiríkur Hauksson, Mezzoforte, Bubbi Morthens, Utangarðsmenn, Egó, Greifarnir, Todmobile, Nýdönsk, Sálin hans Jóns míns, Bjartmar Guðlaugsson, Stjórnin, Jet Black Joe, Maus, Bang Gang, Ragga Gröndal og svo framvegis. Steinar Berg er gestur Rokklands þessa vikuna.…
Hafdís Huld kemur í heimsókn og spjall en hún sendi frá sér plötuna Darkest night í fyrra. Hafdís er svo eiginlega alltaf mest spiluð á Spotify á Íslandi – platan hennar Vögguvísur sem kom út 2012 er yfirleitt öll inn á top 50. Marianne Faithful og Dolly Parton koma aðeins við sögu, og Múr sem var valin bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum í vikunni sem leið, líka Spacestation sem fékk verðlaun fyrir ROKK-lag ársins, og svo er það Supersport sem fékk verðlaun fyrir ROKK-plötu ársins. Rokkland spjallaði við Bjarna Daníel úr Supersport á Eurosonic festival í Hollandi í janúar. Rokkland er 30 ára í ár.…
Rósa Guðrún Sveinsdóttir kemur í heimsókn með splunkunýja plötu sem heitir Drangar. Hafdís Huld Þrastardóttir kemur aðeins við sögu – en meira í næsta þætti eftir viku. Mikael Máni Ásmundsson kemur aðeins við sögu – hann er á tónleikaferðalagi um landið. Við heyrum lögin sem tilnefnd eru til ÍTV í flokknum Önnur tónlist – og rifjum upp þegar Bubbi Morthens mætti í Morgunútarpið á Rás 2 árið 1986 og frumflutti lag sem heitir Aldrei fór ég suður. Og það er fleira. Rokkland er 30 ára í ár.…
Rokkland í dag - The Icelandic Pop Orchestra sem fór í Abbey road til að taka upp plötu. Útgáfutónleikarnir eru á sama tíma og þátturinn (sunnudagur 2. mars kl. 16.00). Í þessari stóru hljómsveit eru t.d: Þórir Baldursson, Tryggvi Hübner, Björn Thoroddsen, Lýður Árnason og Vignir Jóhannsson. Þeir Vignir og Lýður eru gestir Rokklands í dag. Robert Flack kemur líka við sögu - Daníel Hjálmtýsson og Neil Young sem ætlar að spila í Evrópu í sumar.…
Mugison er maður dagsins í dag. Hann hlaut Krókinn 2024 – viðurkenningu Rásar 2, fyrir framúrskarandi tónlistarflutning á árinu, eiginlega fyrir tónleikaferð ársins. 5. apríl í fyrra hélt hann tónleika í Súðavíkurkirkju – fyrstu tónleikarnir í 100 kirkjum í 100 póstnúmerum í fyrra, Tónleikaröðina kláraði hann í Hallgrímskirkju í Reykjavík skömmu fyrir jól, þá búinn að spila í 100 kirkjum í 100 póstnúmerum á rétt um níu mánuðum sem er magnaður árangur og skemmtilegt uppátæki. Mugison tók upp tónleika númer 97 í Hallgrímskirkju í Saurbæ, fyrir sig og Rás 2. Rokkland var á tónleikunum og tók Mugison tali fyrir og eftir tónleika. Við heyrum það og alla tónleikana í Rokklandi dagsins.…
Í Rokklandi dagsins er rifjaður upp þáttur frá 2014 þar sem Stuðmennirnir Valli, Kobbi, Egill og Bjóla segja frá tiluðr plötunnar Tivoli sem er önnur plata Stuðmanna og kom út haustið 1976.
Wacken Open Air - Janne Schaffer og Marianne Faithful
Welcome to Player FM!
Player FM is scanning the web for high-quality podcasts for you to enjoy right now. It's the best podcast app and works on Android, iPhone, and the web. Signup to sync subscriptions across devices.