Ord Af Ordi public
[search 0]
More
Download the App!
show episodes
 
Loading …
show series
 
Tvítala var til í fyrstu og annarri persónu í íslensku og táknuð með fornöfnunum við og þið. Fornöfnin vér og þér táknuðu fleirtölu, það er fleiri en tvö. Með tímanum hvar tvítalan en við og þið fengu fleirtölumerkingu. Vér og þér voru notuð í hátíðlegu máli, því sem kallast þérun.
  continue reading
 
Orðið bifreið var kallað bráðabirgðanýyrði þegar það birtist fyrst á prenti árið 1900. Það hefur verið í stöðugri notkun síðan þá. Lengi vel voru notuð erlend heiti ýmissa hluta bifreiða og varahluta en mikil vinna var lögð í að íslenska þau. Bílorðasafn er til umfjöllunar í þættinum.
  continue reading
 
Halldór Laxness skrifaði greinina Málið í Tímarit Máls og menningar árið 1941 þar sem hann grípur til varna gegn gagnrýni á þýðingar hans, stafsetningu á bókum hans og útgáfu Íslendinga sagna á nútímastafsetningu. Fjallað er um greinina og þá gagnrýni sem hún er svar við.
  continue reading
 
Hið íslenska lærdómslistafélag gaf út ársrit með margvíslegum fróðleik Íslendingum til uppfræðslu. Félagið setti sér líka málstefnu sem fól ekki aðeins í sér að hreinsa málið af erlendum áhrifum heldur ekki síður að mynda ný íslensk orð til þess að auðveldara væri að skýra nýjungar fyrir lesendum ritsins. Árið 1780 voru birtir listar yfir plöntu-, …
  continue reading
 
Orðanefnd Verkfræðingafélagsins tók saman lista yfir orð úr viðskiptamáli fyrir atbeina verslunarmanna í Reykjavík árið 1926 og birti hann í Lesbók Morgunblaðsins. Hann kom líka út í litlu kveri nokkru síðar og þar kemur fram að Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur tók þátt í gerð listans með Verkfræðingafélaginu. Á listanum kennir margra áhugaverðra gr…
  continue reading
 
Bing Crosby söng sig inn í hjörtu heimsins með laginu White Christmas, eftir Irving Berlin, sem varð eitt vinsælasta jólalag allra tíma. Textinn hefur verið endursaminn á fjölda annarra tungumála og íslenska er þar engin undantekning. Fleiri en ein útgáfa er til af því á íslensku. Í þættinum eru leiknar ýmsar útgáfur af laginu White Christmas og á …
  continue reading
 
Bæjarfógetinn í Reykjavík hafði í nægu að snúast við að selja eigur skuldara á uppboði á árunum í kringum aldamótin 1900. Uppboðin voru auglýst í blöðum og þar voru gjarnan taldir upp helstu munir úr innbúum sem þar yrðu seldir svo sem sófar og kommóður, skatthol og skammel, servantar og púff. Fjallað var um ýmis húsgagnaheiti og grennslast fyrir u…
  continue reading
 
Árið 1941 geisaði heimsstyrjöld en Íslendingar fóru í stafsetningarstyrjöld, eina af mörgum. Fyrsti dómurinn sem kveðinn var upp um að íslensk lög gengju gegn stjórnarskrá voru í máli sem snerist um stafsetningu. Í þættinum er Hrafnkötlumálið rifjað upp, þegar Íslendingar voru í stafsetningarstríði á síðum blaðanna, á Alþingi og fyrir dómstólum, á …
  continue reading
 
Orð af orði, þáttur um íslensku og önnur mál. Í þætti dagsins verður rætt um hið forna heimsmál latínu, nokkur sameiginleg einkenni þess og íslensku og margvísleg áhrif latínunnar bæði á íslenskt mál og menningu. Rætt er við aðjúnkt í latínu við Háskóla Íslands, meðal annars um gildi latínunnar í nútímanum. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðr…
  continue reading
 
Orð af orði, þáttur um íslensku og önnur mál. Í þættinum er fjallað um sögu og framtíð afríkönsku, sem einnig hefur verið kölluð búamál og afríkans á íslensku. Afríkanska er vesturgermanskt tungumál, dótturmál hollensku, sem talað er í Suður-Afríku. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.…
  continue reading
 
Í þættinum í dag kynnumst við lítillega stærstu málaætt heims, þeirri sem íslenska tilheyrir, indó-evrópsku málaættinni. Sömuleiðis verður rætt um upphaf fræðigreinarinnar samanburðarmálfræði og þátt Íslandsvinarins Rasmusar Christians Rask í þróun hennar og verndun íslenskunnar. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.…
  continue reading
 
Orð af orði, þáttur um íslensku og önnur mál. Í þættinum í dag verður fjallað um undarlegt kvikindi í íslenskri þjóðtrú. Meðal þess sem kemur við sögu er bretavinnan svokallaða; strokkar og skilvindur í íbúð í vesturbænum í Reykjavík; nafnorðin tili og beri; og hin fjölhæfa sögn bera. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdótti…
  continue reading
 
Loading …

Quick Reference Guide